Trésmiðjan Akur ehf byggir fimm íbúða raðhús við Álfalund 34-42 á Akranesi. Hver íbúð er með fjórum svefnherbergjum og sérstöku sjónsvarpsholi. Eitt herbergið gæti nýst sem geymsla. Tvö baðherbergi eru í hverri íbúð annað er inn af hjónaherbergi. Í þvottaherbergi eru inntök vatns og rafmagns og eru tengigrindur og rafmagnstafla þar. Framan við íbúðir eru bílskýli. Bakgarður snýr í suður, þar sem hægt er að útbúa verönd með heitum potti.

Húsinu verður skilað fullbúnu að utanverðu og íbúðum tilbúnum undir málningu/tréverk að innan. Þ.e. byggingarstig 5 skv. ÍST 51/1998 með frávikum. Sjá nánar byggingarlýsingu.

Lóðin ber eitt lóðanúmer L231874 og er óskipt. Hins vegar er sérafnotaflötur skilgreindur á aðaluppdráttum fyrir hverja íbúð. Ennfremur eru kvaðir um aðgengi milli garða.

Allar íbúðirnar eru jafn stórar

Íbúðin 155,1 m2 og bílskýlið 24,0 m2 alls 179,1 m2.

Íbúðirnar eru komnar í sölu hjá:

Fasteignamiðlun Vesturlands / fastvest@fastvest.is

Fasteignasalan Hákot / hakot@hakot.is

Grunnmynd af nr.34