Undanfarna daga hafa Akursmenn verið að reisa frístundahús í landi Kalastaða Hvalfjarðarsveit. Grunnflöturinn er 116 m2 að stærð og með millilofti er húsið skráð tæpir 150 m2 að stærð. Það er reist úr timbureiningum sem eru klæddar með bandsagaðri furu að utanverðu. Veggeiningarnar voru forsmíðaðar í verksmiðju Akurs ásamt kraftsperrum. Gluggar og útihurðir eru úr timbri með álklæðningu að utan.
Húsinu verður skilað til kaupanda með uppsettum milliveggjum og öllum klæðningum frágengnum á veggi og í lofti. Yfir stofu og eldhúsi eru loft tekin upp. Yfir svefnherberjum og öðrum rýmum er milliloftið fyrir ofan.
Í síðustu viku var búið að reisa þakvirki og klæða ofan á sperrur og var íslenski fáninn settur upp af því tilefni.