Um miðjan nóvember síðast liðinn kláraði Trésmiðjan Akur byggingu og frágang á frístundahúsinu Birkihlíð 10 í Hvalfjarðarsveit. Húsið var þá afhent eigendum fullbúið með innréttingum og öllu tilbúnu innanhúss. Framkvæmdir við gröft og jarðvinnu hófust í byrjun apríl og tók því verkið um 7 mánuði.
Aðal- og verkfræðiuppdrættir voru unnir í Trésmiðjunnai Akri og raflagnauppdrættir voru unnir af Verkís.
Verktakar sem komu að verkefninu með Akri voru;
Ávalt ehf. Mosfellsbæ – undirstöður
Ó.G. Flísalagnir ehf. Borgarnesi – flísalagnir
Rafdreifing ehf. Mosfellsbæ – raflagnir
Ylur pípulagnir slf. Akranesi – pípulagnir
Þróttur ehf. Akranesi – jarðvinna
Starfsfólk Akurs óskar eigendum til hamingju með þetta fallega hús.