Húsasmiðir bætast í hópinn.
Í síðasta mánuði bættust tveir í hóp húsasmiða hjá Trésmiðjunni Akri. Þeir Vigfús Kristinn og Jóhann Snorri luku sveinsprófi frá Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi. Þar áður hafði Eggert Kári bæst í hópinn, en hann lauk sveinsprófi í desember 2022.
Frá stofnun fyrirtækisins hafa á annað hundrað nemar í húsa- og húsgagnasmiðir klárað sveinspróf hjá Trésmiðjunni Akri.
Nýúskrifaðir húsasmiðir með meistaranum sínum. Vigfús Kristinn, Jóhann Snorri, Eggert Kári og Stefán Gísli húsasmíðameistari.