Smiðjuvellir 9 – Akranesi |
Trésmiðjan Akur ehf var stofnuð 20. nóvember árið 1959. Frá upphafi hefur fyrirtækið verið leiðandi fyrirtæki í byggingarstarfsemi á Akranesi. Verkefni fyrirtækisins hafa verið afar fjölbreytt frá upphafi m.a. hefur fyrirtækið byggt á annan tug fjölbýlishúsa á Akranesi auk margra annarra stórra sem smárra verkefna. Nú hin síðari ár hefur aðalstarfsemi fyrirtækisins verið framleiðsla á íbúðarhúsum – timbureiningahúsum og sumarhúsum, auk ýmissa þjónustuverka í trésmíði.
Trésmiðjan Akur er aðili að Samtökum Iðnaðarins og starfa að jafnaði um 20-30 manns hjá fyrirtækinu.