Framleiðslan
Öll framleiðsla SUMARhúsa AKURS fer fram í verksmiðju okkar að Smiðjuvöllum 9 á Akranesi. Hönnun og gerð byggingarnefnda- og verkfræðiteikninga fer öll fram hjá fyrirtækinu. Þetta eykur gæði og öryggi allrar framleiðslunnar enda virkt eftirlit með henni frá upphafi til enda. Efnisgæði og verklag við smíði og frágang timburhúsa hefur breyst mikið í gegnum árin til batnaðar, bæði vegna nýrra efna sem fram hafa komið á markaðnum, svo og hafa kröfur byggingaryfirvalda um virkt gæðaeftirlit aukist. Fyrirtækið hefur kappkostað að fylgjast með breytingum og nýjungum á markaðnum svo og breytingum á byggingarreglugerð. Framleiðsla okkar miðast við nýja byggingarreglugerð nr. 112/2012, sem tók gildi vorið 2013.
Við vitum hversu mikilvægt það er að finna hús sem hentar hverjum og einum. Því leggjum við áherslu á að uppfylla allar óskir og þarfir þínar. Meðal annars með breytingum á teikningum, efnisvali, gluggagerðum o.fl. Ef þú villt t.d. hafa lárétta panelklæðningu, eða málmklæðningu á húsinu í stað lóðréttrar timburklæðningar, sveigjum við framleiðsluna að þeirri klæðningu. Þú ræður för í þessum efnum.
Framleiðslan í stuttu máli
- Hafðu samband við okkur
- Við gerum tilboð
- Þú samþykkir
- Við framleiðum